Nói Síríus
Nói Síríus
Nói Síríus

Sölumaður Austurland

Nói Síríus leitar að jákvæðum, drífandi og þjónustulunduðum einstaklingi í 85% starf á Austurlandi. Sem starfsmaður í vettvangssölu munt þú gegna mikilvægu hlutverki við að tryggja að vörur okkar séu til staðar í þeim verslunum sem við á. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt og er með góða samskiptahæfni og skipulagshæfileika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg sala og þjónusta við verslanir og viðskiptavini á Austurlandi
  • Ráðgjöf, kynning og uppstilling á vörum í verslunum
  • Regluleg eftirfylgni með birgðum og pöntunum
  • Staðbundin markaðs- og kynningarvinna
  • Skráning og upplýsingagjöf til viðskiptastjóra
  • Önnur verkefni sem tengjast sölu og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu eða þjónustu er kostur
  • Frábær samskiptahæfni og jákvæð framkoma
  • Sjálfstæði, skipulag og ábyrg vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og grunnþekking í ensku
  • Bílpróf er skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
  • Áhugi á vörum Nóa Síríus og þjónustu við viðskiptavini
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurland
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar