
Heimilistæki / Tölvulistinn
Heimilistæki og Tölvulistinn eru keðja heimilistækja- og tölvuverslana sem reknar eru í sameiningu á landsbyggðinni.
Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans á landsbyggðinni eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ.
Verslanirnar eru hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Hlutastarf
Verslun Tölvulistans og Heimilistækja í Keflavík leitar að áhugasömum og þjónustulunduðum sölufulltrúa í hlutastarf í verslun okkar. Tölvulistinn/Heimilistæki eru þjónustuaðilar Símans á Reykjanesi og því felst einnig í starfinu þjónusta við viðskiptavini Símans.
Við bjóðum upp á framtíðarstarf í öflugu og jákvæðu starfsumhverfi, þar sem ráðgefandi sala og framúrskarandi þjónusta eru í forgrunni.
📅 Vinnutími
- Annan hvern laugardag 11-16 (ekki yfir sumartímann)
- Tilfallandi vaktir virka daga
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta við viðskiptavini með áherslu á faglega ráðgjöf
- Áfyllingar, framstillingar og móttaka á vörum
- Afgreiðsla og afhending pantana
- Þrif og almenn verslunarstörf
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustörfum mikill kostur.
- Þekking og áhugi á tölvum, raf- og heimilistækjum
- Áhugi á heimilis-, eldhús- og gjafavörum.
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt22. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 90, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaHeiðarleikiMetnaðurSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Icewear Akureyri - Goðafoss - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Sölumaður á glerlausnum Samverks
Glerverksmiðjan Samverk

Starfsmaður í lager, afgreiðslu og prófílavinnu
Glerverksmiðjan Samverk

Dubliner óskar eftir Barþjónum í Reykjavík & Kefalvik
The Dubliner Reykjavík

Sölu- og þjónustustarf í tískuvöruverslun Curvy
Curvy verslun

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Ford-Reykjavík
Ford á Íslandi | Brimborg

Floor Manager - COS
COS

Lagerstarfsmaður óskast í Bónus Reykjanesbæ
Bónus

Vaktstjóri í helgarstarf
S4S Premium Outlet

Join our team for the summer: kitchen workers, bartender or barista.......
SSP Iceland

Viðskiptastjóri
Teya Iceland

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri, hlutastarf
Blómaval