Eirberg
Eirberg ehf. er framsækið verslunar-, innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem hefur á að skipa þjónustumiðuðu starfsfólki. Markmið okkar eru að efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf.
Verslanir okkar hafa nokkra sérstöðu hvað vöruval og gæði snerta þar sem góð upplifun viðskiptavina er okkur mikilvæg.
- Við berum umhyggju fyrir vellíðan viðskiptavina okkar, hlustum og veitum góða þjónustu.
- Við njótum þess að mæta þörfum viðskiptavina okkar með góðri ráðgjöf og leggjum okkur fram við að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín.
- Við mætum hverjum og einum viðskiptavini þar sem hann er og finnum í sameiningu leiðir sem gera viðskiptavininum kleift að njóta sín og eigin heilsu.
Systurfyrirækið Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður m.a. hjálpartæki, hjólastóla, heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Markmiðin eru að auðvelda fólki daglegt líf, styðja einstaklinga til sjálfshjálpar, auka vinnuvernd og hagræði.
Stuðlaberg er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands um:
- Bað- og salernishjálpartæki
- Barna- og hjúkrunarrúm
- Gönguhjálpartæki
- Fólkslyftara
- Hjólastóla og hjálparmótora
- Rafknúna hjólastóla
- Viðgerðarþjónustu hjálpartækja
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur á þessu sviði.
Sölufulltrúi í hlutastarf í verslun á Stórhöfða 25
Óskum eftir að ráða til okkar áreiðanlegan og jákvæðan einstakling í hlutastarf við sölu-, þjónustu- og afgreiðslu í verslun okkar að Stórhöfða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörusala og afgreiðsla í verslun
- Kynna vörur, gæði og eiginleika þeirra
- Hlusta á óskir viðskiptavina og veita góða þjónustu
- Vöruframstillingar og áfyllingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta og hreint sakavottorð eru skilyrði
- Starfsmaður sé kurteis og jákvæður
- Stundvísi, almenn hreysti og reglusemi eru áskilin
Auglýsing birt1. nóvember 2024
Umsóknarfrestur18. nóvember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniLíkamlegt hreystiSölumennskaStundvísiVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Söluráðgjafi á rafmagnsvörum
Ískraft
Sölumaður í dagvörudeild ÓJ&K – ÍSAM
ÓJ&K - Ísam ehf
Starfsmaður í sölu á bílskúrs- og iðnaðarhurðum
Límtré Vírnet ehf
Sölu og markaðsfulltrúi
Provision
Viðskiptastjóri
Smyril Line Ísland ehf.
Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR
Ferðasérfræðingur - hópadeild
Icelandia
Ertu söludrifinn og jákvæður einstaklingur?
Tryggja
A4 Skeifan – Fullkomin vinna með skóla
A4
Afgreiðslustarf 👉 Liðið okkar stækkar!
TRI VERSLUN
Þjónusta - Apótek Hafnarfjarðar
Apótek Hafnarfjarðar
Sölumaður á matvörusviði
Danól