

Sölufulltrúi-helgarstarf Skeifan
Við leitum að sölufulltrúa til starfa í ELKO Skeifunni.
Starfið felur í sér sölu til viðskiptavina og hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.
Um helgarstarf er að ræða og unnið er laugardaga og sunnudaga, aðra hverja helgi, samkvæmt vaktaplani sem liggur fyrir mánuð fram í tímann.
Vinnutími miðast almennt við afgreiðslutíma verslunar, 11-18 á laugardögum og 12-18 sunnudögum.
Hæfniskröfur:
- 20 ára og eldri
- Rík þjónustulund
- Geta unnið sjálfstætt og hugsað í lausnum
- Geta sýnt frumkvæði í starfi og tekist á við krefjandi verkefni
- Hæfni í samskiptum og fagleg vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
- Íslenskukunnátta skilyrði
Við hetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!
ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Frekari upplýsingar veitir Magnús T. Magnússon verslunarstjóri, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 4.júní 2023











