Hringiðan Internetþjónusta
Hringiðan Internetþjónusta

Sölu og þjónustufulltrúi

Sölu- og þjónustufulltrúi – Leitum að einstaklingi í faglegt og öflugt teymi

Hringiðan óskar eftir áreiðanlegum, lausnamiðuðum og þjónustulunduðum einstaklingi með reynslu úr fjarskiptum, t.d. Internet-, farsíma- eða ljósleiðaraþjónustu.
Við erum eitt reynslumesta fjarskiptafyrirtæki landsins og þjónustum bæði einstaklinga og fyrirtæki með áherslu á persónulega þjónustu, gæði og hraða úrlausn mála.

Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa áður unnið:

  • í þjónustuveri eða afgreiðslu hjá fjarskiptafyrirtæki
  • við ljósleiðaraferla, tengingar eða uppsetningar
  • í sölu eða ráðgjöf tengdri Internet- eða farsímaþjónustu

Starfið hefst með reynslutíma og getur þróast í langtímastarf fyrir réttan aðila.

Helstu verkefni

  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina Hringiðunnar í Internet-, farsíma- og fjarskiptaþjónustu
  • Afgreiða pantanir, breytingar og uppsetningarbeiðnir
  • Leita lausna í tæknilegum og þjónustutengdum málum í samvinnu við teymið
  • Taka þátt í sölutengdum verkefnum og eftirfylgni
  • Aðstoða eftir þörfum í tengslum við email, hýsingu, netlausnir og Microsoft-þjónustur
  • Annað faglegt þjónustu- og sölustarf sem til fellur

Þú verður hluti af litlu og öflugu teymi þar sem hraðar ákvarðanir eru teknar og persónuleg fagmennska skiptir máli.

Hæfniskröfur

  • Reynsla úr fjarskiptum, t.d. þjónustuveri, sölu eða afgreiðslu tengdri internet- eða farsímaþjónustu
  • Þekking á ljósleiðaraferlum, uppsetningum, afgreiðslu beiðna eða sambærilegum verkefnum er mikill kostur
  • Góð samskiptahæfni, faglegt viðmót og góð þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér kerfi (t.d. MS CRM )
  • Skipulagður vinnustíll, ábyrgð og áreiðanleiki
  • Jákvæðni og vilji til að vinna sem hluti af samstilltu fjarskipta teymi
  • Reyklaus er skilyrði
  • Stundvísi og traust vinnubrögð

Við metum mjög til reynslu ef umsækjandi hefur áður starfað í þjónustu fyrir:

  • Ljósleiðarann / Mílu
  • Nova
  • Vodafone
  • Símann
  • eða aðrar Internetþjónustur með sambærilega tækni- og þjónustuaðila

Vinnutími

  • 100% starf
  • Virkir dagar: 9.00 –17.00
  • Annar hvern laugardag eða samkvæmt samkomulagi: 13–17

Fríðindi og starfskjör

  • Internettenging frá Hringiðunni
  • Farsími
  • Starf í faglegu þjónustuveri með sérfræðingum í net- og fjarskiptum
  • Sjálfstætt starf, þjálfun og tækifæri til að vaxa í starfi
  • Tækifæri til að vinna í litlu, öflugu teymi þar sem þín reynsla skiptir máli

Af hverju Hringiðan?

  • Öflug starfsemi í fjarskiptum síðan 1995
  • Vinnuumhverfi sem hvetur til sjálfstæðra vinnu.
  • Mikil fagþekking innan húss og sterkt teymi
  • Möguleiki á að hafa áhrif á ferla, þjónustu og upplifun viðskiptavina
  • Stuðningur í innleiðingu og þróun í starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða viðskiptavini við Internet- og símaþjónustu.
  • Söluráðgjöf og afgreiða pantanir og breytingar á þjónustum
  • Aðstoða við upplýsingatæknitengd mál tengd, email,  hýsingu og Microsoft
    (sé þekking til staðar, eða vilji til að læra)
  • Aðkoma að sölutengdum verkefnum
  • Leysa ýmis önnur verkefni sem koma upp í starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum og aðstoð við internet-/símaþjónustu er mikill kostur.
    Góð þekking á Microsoft CRM kemur sér vel, en vilji til að læra og skila góðu starfi er lykilatriði. Við hvetjum fólk sem hefur reynslu af öllum aldri til þess að sækja um.
Fríðindi í starfi
  • Heimatenging
  • Farsími
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skúlagata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar