
Nostra
Nostra er þjónustufyrirtæki á þvotta- og ræstingarmarkaði og bjóðum við viðskiptavinum okkar upp á alhliðarlausn í þeim efnum. Starfsmenn Nostra fá ítarlega þjálfun í að vinna samkvæmt viðeigandi ferlum og verklýsingum og hjá okkur starfar skemmtilegur hópur starfsmanna.

Sölu- og markaðsfulltrúi
Nostra Ræstingar og Mosey ehf. eru systurfyrirtæki með starfsemi að Eyrartröð 2a í Hafnarfirði.
Nostra sérhæfir sig í faglegri ræstingarþjónustu fyrir hótel, gistiheimili, Airbnb og heimili, þar sem áhersla er lögð á gæði, skilvirkni og sveigjanleika.
Mosey framleiðir íslensk, umhverfisvæn hreinsiefni með 100% endurnýtanlegum umbúðum, með það að markmiði að draga úr kolefnaspori án þess að skerða gæði.
Saman bjóða fyrirtækin upp á heildarlausn í hreinlæti – bæði þjónustu og vörur sem styðja við hana.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Sækja nýja viðskiptavini fyrir ræstingarþjónustu Nostra (hótel, Airbnb, heimili og fyrirtæki)
- Selja og kynna Mosey hreinsiefni fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga
- Viðhalda og efla tengsl við núverandi viðskiptavini
- Senda tilboð og fylgja upp á viðskiptatækifæri
- Taka þátt og sjá um skipulagningu sölu- og markaðsaðgerða
- Umsjón og uppfærslur á heimasíðum og facebook fyrirtækjanna (nostra.is og mosey.is) – halda efni, verðlag og vörulýsingar uppfærðum
- Fylgjast með og bregðast við fyrirspurnum sem berast í gegnum heimasíður
Við leitum að einhverjum sem
- Hefur reynslu eða áhuga á sölu og þjónustu við viðskiptavini
- Er frumkvöðullinn í sér – getur unnið sjálfstætt og tekið eigin frumkvæði
- Er hrifinn af íslenskum, umhverfisvænum og sjálfbærum lausnum
- Er lipur í samskiptum og lætur til sín taka
- Hefur grunnþekkingu á umsjón heimasíðna eða netverslunar (t.d. Shopify) – eða hefur áhuga á að læra
- Talar og skrifar íslensku reiprennandi (enska er kostur)
Auglýsing birt27. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Eyrartröð 2A, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Email markaðssetningMarkaðsmálSölumennskaTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Söluráðgjafi í Fagmannaverslun
Húsasmiðjan

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Pikkoló leitar að skapandi samfélagsmiðlafulltrúa!
Pikkoló ehf.

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf