Rými
Rými
Rými

Smiður/verkstjóri

Vegna aukinna verkefna leitum við að vönum smið til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, faglegur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt. Þá þarf viðkomandi að hafa gott auga fyrir smáatriðum og eiga auðvelt með að koma frá sér fyrirmælum. Við hvetjum fólk á öllum aldri til að sækja um.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetningar, endurbætur og þjónusta
  • Verkstjórn og gæðastjórnun
  • Tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í húsasmíði mikill kostur
  • Mikil fagmennska
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vilji til að ganga í öll verk með bros á vör
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift
  • Vinnuföt
Auglýsing birt15. apríl 2025
Umsóknarfrestur4. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HúsasmíðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar