
Smiður / Múrari
Múrkompaníið ehf óskar eftir smið eða múrara í fullt starf.
Starfið er fjölbreytt og krefst þess að viðkomandi sé svolítið á ferðinni. Verkefnin eru að mestu leiti á höfuðborgarsvæðinu.
Múrkompaníið er staðsett í Desjamýri í Mosfellsbæ. Hjá félaginu starfa ca 30 menn við múrverk. Við búum yfir mikilli reynslu og þekkingu á múrverki innanhúss og utan.
Halda yfirsýn yfir verkefni
Verkefnastýring
Samhæfing verkefna og verkstýring
Milliliður verkkaupa og starfsmanna
Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Iðn eða tæknimenntun sem nýtist í múrgreinum eða amk 5 ára reynsla í byggingariðnaði (múrari eða smiður t.d.)
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst þar sem verkefnastaðan er mjög góð
Reynsla og þekking af byggingarmarkaðnum kostur
Við leytum að lausnamiðuðum, skipulögðum og drífandi starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og talar bæði íslensku og ensku.
Við bjóðum samkeppnishæf laun og ýmis kjör og fríðindi sem eiga við starfsemina













