Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Smiður á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.

Þjóðleikhúsið leitar að reynslumiklum smiði með áhuga á starfsemi leikhúsa. Starfið felur í sér smíði leikmynda ásamt öflugu teymi á smíðaverkstæði leikhússins.

Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Smíði leikmynda
  • Vinna að útfærslu við smíði leikmynda, efnisval og vinnsluaðferðir í samvinnu við yfirsmið smíðaverkstæðis og teymisstjóra leikmyndaframleiðslu
  • Taka við samþykktum teikningum og bera ábyrgð á framleiðslu/smíði á ákveðnum verkþáttum
  • Halda tímaáætlanir við smíði leikmynda
  • Stuðla að því að efni og aðföng séu vel nýtt
  • Þátttaka í fyrstu uppsetningu leikmynda á sviði
  • Leggja sig fram við að kolefnisfótspor við framleiðslu leikmynda sé haldið í lágmarki og sé í samræmi við umhverfisstefnu leikhússins
  • Tryggja að öryggi, frágangur og umgengni á smíðaverkstæði sé til fyrirmyndar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mikil reynsla af hverskyns smíðavinnu 
  • Menntun sem nýtist í starfi  
  • Reynsla af starfi í leikhúsi og smíði leikmynda er kostur
  • Reynsla af málmsmíði og suðu er kostur
  • Þekking á ólíkum smíðaefnum
  • Hæfni til að meta tímalengd á verkþáttum
  • Hæfni til að vinna vel í fjölbreyttu teymi og ganga vasklega til verks
  • Góð almenn tölvukunnátta: Outlook, Excel, Word. 
  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og áræðni ásamt hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Gott vald á íslensku og/eða ensku
Auglýsing birt12. janúar 2026
Umsóknarfrestur19. janúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LogsuðaPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.Stálsmíði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar