
Slökkviliðsstjóri Vestmannaeyja
Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf slökkviliðsstjóra. Um er að ræða 100% starf sem unnið er á dagvinnutíma og er 36 klst vinnuvika auk æfinga og bakvakta að hluta.
Slökkviliðsstjóri hefur aðsetur í slökkviliðsstöð Vestmannaeyjabæjar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar.
-
Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðsins
-
Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins
-
Eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða
-
Umsjón með öllum tækjum og viðhald á búnaði slökkviliðsins
-
Umsjón með fjárreiðum, stefnumótun og áætlanagerð í samráði við sviðsstjóra
-
Samskipti við hagsmunaaðila
-
Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. nr. 75/2000 og starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum
-
Hafa lokið námi sem eldvarnareftirlitsmaður sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna
-
Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri
-
Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
-
Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði í starfi
-
Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Leiðtogafærni
-
Vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi
-
Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
-
Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
Íslenska