

Skrifstofustjóri óskast í Hofstaðaskóla
Staða skrifstofustjóra í Hofsstaðaskóla er laus til umsóknar. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlutfalli. Skrifstofustjóri hefur yfirumsjón með skrifstofu skólans og kemur að margvíslegum verkefnum í samstarfi við skólastjórnendur. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.
- Umsjón með og ábyrgð á daglegu starfi á skrifstofu skólans og upplýsingaflæði innan skólans og til forráðafólks
- Svara fyrir hönd skólans ýmsum fyrirspurnum eða vísa á rétta aðila
- Sjá til þess að á skrifstofu séu að jafnan til reiðu upplýsingar um ýmsa þætti skólastarfsins
- Umsjón með skráningu nemenda í skólann, nemendaskrá og skráningu forfalla
- Umsjón með starfsmannakerfi, gerð ráðningarsamninga og vinnuskýrslna
- Skipulag og stjórnun skjalavörslu skólans m.a. One System og Mentor, rita og vista fundargerðir
- Yfirferð reikninga, eftirlit með fjármálum og stöðu í áætlunum
- Umsjón með stærri innkaupum rekstaravara til skólans og innkaupum námsgagna
- Tengiliður skólans við þjónustuaðila s.s. vegna ýmiss búnaðar og þjónustu
- Halda utan um forföll starfsmanna í Vinnustund og leysa forföll í samráði við stjórnendur
- Sinna öðrum þeim störfum sem skólastjóri kann að fela viðkomandi
- Háskólapróf á sviði viðskipta og rekstrar
- Fjölbreytt reynsla af skrifstofustörfum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Lausnamiðuð viðhorf til krefjandi verkefna
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og metnaður
- Mjög góð tölvukunnátta og bókhaldsþekking
- Þjónustulund og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
Íslenska
