Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Skrifstofustjóri í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli óskar eftir skrifstofustjóra í 80% -100% starf

Við leitum að þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í lifandi skólastarfi og styðja við daglegan rekstur skólans.

Í Hörðuvallaskóla eru um 520 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Starfið hentar vel einstaklingi sem þrífst í hröðu og lifandi starfsumhverfi.

Ráðningartími og starfshlutafall

Um er að ræða 80% - 100% starf og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Vinnutími hefst kl. 7:30 á morgnana.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu.
  • Móttaka og þjónusta við nemendur, foreldra, starfsfólk og gesti skólans.
  • Símsvörun og miðlun skilaboða til viðeigandi aðila innan og utan bæjarins.
  • Umsýsla, skjölun og frágangur gagna s.s. nemenda- og starfsmannagögn.
  • Umsjón með viðveruskráningu starfsmanna í Vinnustund.
  • Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla.
  • Innkaup og birgðahald fyrir skrifstofu og skólahald.
  • Stuðla að velferð nemenda og góðum samskiptum við forsjáraðila í samstarfi við fagfólk skólans.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við skólastjóra og stjórnendur.

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Mjög góð þekking og/eða reynsla af skrifstofustörfum, helst innan skóla- eða opinberrar stjórnsýslu.
  • Góð tölvukunnátta og færni í ritvinnslu og almennri skrifstofuvinnu.
  • Þekking á upplýsingakerfum eins og Mentor er mikill kostur.
  • Þekking og reynsla á Vinnustund er mikill kostur.
  • Frábær hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og fagleg framkoma.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar