

Skólastjóri Varmárskóla
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf skólastjóra Varmárskóla.
Nýr skóli á gömlum grunni
Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Á næsta skólaári verður Varmárskóli fyrir 1.-6. bekk með um 400 nemendur. Skólinn starfar í anda uppbyggingarstefnunnar og leggur áherslu á útinám. Skólastjóri Varmárskóla ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í að móta góðan skólabrag og samstarfsvettvang skóla og íbúa. Skólastjóri ber ábyrgð á að skólinn starfi í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir áræðni og leiðtogafærni.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.