
Tónlistarskóli Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga er samrekinn af öllum átta sveitarfélög Árnessýslu og er einn stærsti og umsvifamesti tónlistarskóli landsins. Starfsemi skólans fer fram á tólf stöðum í sýslunni. Fjöldi nemenda er um 540 og um 40 kennarar starfa að jafnaði við skólann. Kennt er á flest öll hefðbundin klassísk og rytmísk hljóðfæri.
Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í menningarlífi Árnessýslu með metnaðarfullu starfi, öflugu tónleikahaldi og virku samstarfi við skóla, sveitarfélög og samfélagið.
SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA
Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins.
Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans
- Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms
- Mannauðs- og launamál
- Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila
- Áætlanagerð og upplýsingagjöf
- Vinna með starfsmönnum skólans að stefnumótun og þróun starfseminnar
- Ýmis önnur verkefni sem snerta stjórnun skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tónlistarmenntun á háskólastigi; menntun á sviði stjórnunar kostur
- Stjórnunarreynsla, reynsla af verkefnastjórnun, rekstri og/eða menningarstarfi æskileg
- Innsýn í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarnáms æskileg
- Leiðtogafærni og hæfni til að leiða faglegt starf og þróun
- Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fagmennska, frumkvæði og metnaður í starfi
- Mjög góð tölvukunnátta, tæknilæsi og innsýn í samfélagsmiðla
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Eyravegur 9, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaLeiðtogahæfniMannleg samskiptiVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Skólastjóri Grenivíkurskóla - afleysing í 1 ár
Grýtubakkahreppur

Skólastjóri Fellaskóla Fellabæ, við þéttbýli Egilsstaða
Fellaskóli Fellabæ

Leikskólastjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað
Leikskólinn Eyrarvellir

Aðstoðarskólastjóri Salaskóla
Salaskóli

Tónmenntakennari - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri
Baugur

Skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarskólameistari
Menntaskóli Borgarfjarðar

Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

SKÓLASTJÓRI
Þingeyjarsveit