
Grundarfjarðarbær
Grundarfjarðarbær er þéttbýlisstaður á Snæfellsnesi þar sem náttúrufegurð í heimsklassa er hluti af daglegu lífi. Sveitarfélagið er í spennandi uppbyggingarskeiði með fjölda verkefna framundan, bæði í innviðauppbyggingu og samfélagslegri þróun.
Í bænum er leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli sem gerir Grundarfjörð að kjörnum stað fyrir fjölskyldur á öllum stigum. Þar er hlýtt og lifandi samfélag þar sem íbúar þekkjast og líður vel saman.
Skólastjóri Leikskólans Sólvalla
Grundarfjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf skólastjóra Leikskólans Sólvalla.
Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 5 ára. Í dag eru nemendur milli 40-50. Sérstök fimm ára deild er rekin undir Grunnskóla Grundarfjarðar og er samstarf gott á milli skólanna.
Leitað er að kraftmiklum stjórnanda með forystu- og skipulagshæfileika, jákvætt viðhorf og metnað til að taka þátt í uppbyggingu og umbótum í skólastarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun (leyfisbréf) og kennslureynsla er skilyrði
Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar- og/eða menntunarfræða er æskileg
Reynsla af rekstri, stjórnun og stefnumótun er kostur
Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Færni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu starfi er skilyrði
Færni í að tjá sig, í töluðu og rituðu máli er skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg forysta um kennslu og þróun skólastarfs.
Stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mönnun og mannauð, og starfsemi leikskólans, í samræmi við lög og stefnu bæjarstjórnar.
Auglýsing birt10. september 2021
Umsóknarfrestur26. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sólvellir 1, 350 Grundarfjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Forstöðuhjúkrunarfræðingur legudeilda á bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu
Landspítali

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet hf.

Forstöðumaður Íbúðakjarna í Ólafsvík
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands
Rafíþróttasamband Íslands

Forstöðumaður
Vélanaust

Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti
Samhjálp

Sviðsstjóri eftirlits hjá Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Technical Director
Fenris Creations