Grýtubakkahreppur
Grýtubakkahreppur
Grýtubakkahreppur

Skólastjóri Grenivíkurskóla - afleysing í 1 ár

Grýtubakkahreppur leitar að drífandi, metnaðarfullum og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða framsækið og skapandi skólastarf. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs, skólaárið 2026-2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og þróun skólastarfs í samræmi við lög um grunnskóla, aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Grýtubakkahrepps.
  •  Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál.
  •  Að leiða starf í framsæknu og metnaðarfullu skólasamfélagi sem leggur m.a. áherslu á góðan skólabrag, teymiskennslu, lýðheilsu og umhverfismennt.
  •  Að stuðla að góðu samstarfi við aðila skólasamfélagsins; starfsfólk, nemendur, foreldra og nærsamfélagið.
  •  Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu og reynsla af kennslu í grunnskóla er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, kennslufræði, uppeldis- og menntunarfræða eða á öðru fagsviði sem nýtist í starfi æskileg.
  • Reynsla af stjórnun, faglegri forystu og þátttöku í skólaþróunarverkefnum æskileg.
  • Leiðtogahæfileikar, lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, jákvæðni og rík þjónustulund.
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði.
  • Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og framkomu.
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Túngata 3, 610 Grenivík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar