

Skólaliði og frístundarleiðbeinandi í Kópavogsskóla
Við í Kópavogsskóla erum að leita að lífsglöðum og áhugasömum skólaliða og frístundarleiðbeinanda í 100% starfshlutfall.
Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 frábæra nemendur og um 80 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og ýmis þróunarverkefni eru í gangi.
Skólaliði starfar með nemendum í leik og starfi, annast gangavörslu, frímínútnagæslu, aðstoðar í eldhúsi í matar- og neyslutímum ásamt því að starfa í frístund.
Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.
- Eftirlit með nemendum innan húss og utan í samstarfi við annað starfsfólk skólans
- Gengur fram með góðu fordæmi og aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Aðstoðar í eldhúsi og matsal skólans í matar- og neyslutímum
- Sinnir nemendum í frístund í leik og starfi
- Ræstingar
- Gangavarsla, gangbrautargæsla, útigæsla
- Fylgir nemendum í ferðir ef við á, s.s. í sund-, íþrótta- og vettvangsferðir
- Sinnir öðrum tilfallandi verkefnum sem kunna að vera falin af yfirmanni
- Þolinmæði, jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta æskileg
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska










