Grundaskóli
Grundaskóli

Skólaliði í Grundaskóla

Skólaliði í Grundaskóla

Grundaskóli er heildstæður grunnskóli með um 700 nemendur og 110 starfsmenn. Í skólanum er metnaðarfullt skólastarf, gott starfsumhverfi og góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans. Í Grundaskóla eru gerðar kröfur til nemenda og starfsfólks um dugnað, reglusemi, góða umgengni, góða ástundun og gagnkvæma virðingu.

Grundaskóli auglýsir eftirfarandi stöðu lausa til umsóknar:

  • Skólaliði, 60-80% staða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skólaliði þarf að geta hjálpað börnum í leik og starfi og leiðbeint þeim.
  • Skólaliðar eru í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á.
  • Sér um daglega ræstingu og tekur að sér tilfallandi verkefni.
  • Hefur umsjón með nemendum í frímínútum.
  • Aðstoðar í eldhúsi og í matartímum nemenda.

 

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Skólaliði þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni og vera umhyggjusamur.
  • Vera stundvís.
  • Vera sveigjanlegur og opin fyrir breytingum.
  • Hafa gott vald á íslensku.
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur17. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Espigrund 1, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar