Hjallastefnan leikskólar ehf.
Hjallastefnan ehf er framsækið menntafyrirtæki í eigu áhugafólks um skólastarf. Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands. Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta. Skólar Hjallastefnunnar starfa ákaflega sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.
Skólafreyja á Litlu Ásum
Skólafreyja starfar samkvæmt stefnu og handbók Hjallastefnunnar, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitafélags.
Skólafreyja er skólastjóra og öðrum stjórnendum innan handar um flest það sem varðar skipulag og framkvæmd skólastarfsins.
Um er að ræða 50% - 70% starf
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hægri hönd leikskólastjóra í daglegum rekstri leikskólans
- Sér um innkaup fyrir skólann / annast sendiferðir fyrir skólann.
- Ber ábyrgð á að aðbúnaður kennara sé nægjanlegur t.d. skápapláss í starfsfólksaðstöðu.
- Smskipti vegna viðhalds húsnæðis við eiganda (bæjarfélag) í þeim tilvikum sem við á.
- Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjóri felur skólafreyju á hverjum tíma til þess að skólastarf gangi vel.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfið krefst mikilla skipulagshæfileika
- Sjálfstæð vinnubrögð, gott skynbragð á þarfir umhverfisins.
- Færni til samvinnu og frumkvæðis í starfi.
- Lausnamiðuð hugsun og snyrtimennsku.
Fríðindi í starfi
- Útivist
- Frítt hollt fæði
- Vinnustytting
Auglýsing birt9. október 2024
Umsóknarfrestur21. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vifilstaðavegur 118,
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVinna undir álagi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar