Lindaskóli
Lindaskóli
Lindaskóli

Skóla- og frístundaleiðbeinandi

Lindaskóli óskar eftir skóla- og frístundaleiðbeinanda

Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi. Í skólanum eru 460 nemendur í 1. -10. bekk og 80 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu. Hann leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt og tekur þátt í Grænfánaverkefninu. Virk heilsuefling er eitt einkenna skólans og hefur til margra ára verið í forystusveit skóla sem hafa tekið þátt í Skólahreysti. Mikil og góð samvinna hefur verið milli skólans og heimila í nærumhverfinu.

Ráðningartími og starfshlutafall

Starfshlutfall er 100%

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Eflingar.

Umsóknarfrestur er til 3. ágúst. Ráðið er í starfið frá 9. ágúst.

Upplýsingar gefur Guðrún G. Halldórsdóttir, skólastjóri, í síma 862-8778 og á netfanginu [email protected]

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Einungis er hægt að sækja um starfið á ráðningarvef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is eða í gegnum alferd.is

Auglýsing birt22. júlí 2021
Umsóknarfrestur3. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar