Skógræktarfélag Reykjavíkur
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Skógræktarfélag Reykjavíkur

Skógarstarf í Heiðmörk

Skógræktarfélag Reykjavíkur er sjálfstætt starfandi félagasamtök sem vinna að skógrækt og landbótum ásamt uppbyggingu og umhirðu útivistarsvæða. Heiðmörk og Esjuhlíðar eru í umsjón félagsins og njóta mikilla vinsælda, þar sem fjöldi gesta eykst ár frá ári. Skógræktarfélag Reykjavíkur óskar eftir starfskrafti til að starfa með öflugu teymi við grisjun og skógarumhirðu í Heiðmörk.

Fyrir utan grisjun og vélavinnu í skógi fær starfsmaður að taka þátt í starfi viðarvinnslu félagsins og fjölbreyttum verkefnum. Um er að ræða spennandi útivistarstarf og góðan félagsskap fyrir réttan aðila.

Starfið felst fyrst og fremst í skógarumhirðu og framleiðslu viðarafurða. Öll vinna félagsins fer fram með ríka áherslu á öryggi, vatnsvernd og varkárni á viðkvæmum vatnsverndarsvæðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Grisjun og umhirða í skógi
  • Útkeyrsla á bolvið úr skóginum
  • Eftirlit og viðhald á vélum og tækjabúnaði
  • Við vinnslu: kurla og framleiða eldivið
  • Tilfallandi skógarvinna í Heiðmörk og öðrum skógum sem félagið rekur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Bílpróf og vinnuvélapróf
  • Kostur að hafa menntun sem tengist skógrækt eða landbúnaði
  • Æskilegt að umsækjandi búi yfir hæfni til að stýra og vinna á vélum á öruggan hátt
  • Kostur ef umsækjandi hefur menntun eða reynslu af viðhaldi véla og tækja
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna sjálfstætt
  • Umsækjandi þarf að vera 22 ára eða eldri
  • Umsækjandi þarf að búa yfir vilja og burði til líkamlegrar vinnu
  • Kostur ef umsækjandi hefur réttindi og reynslu af vinnu með keðjusög
  • Mikilvægt að virða öryggisreglur og sýna varkárni við stjórn vinnuvéla
Auglýsing birt11. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Elliðavatnsland Jaðar , 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar