Landsbókasafn -Háskólabókasafn
Landsbókasafn -Háskólabókasafn

Skjalastjóri

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn leitar að öflugum og metnaðarfullum skjalastjóra.

Skjalastjóri hefur umsjón með skjala- og gæðakerfi safnsins og þróun skjalastjórnunar á safninu og styður við innleiðingu og samræmingu verklags þvert á safnið. Skjalastjóri heyrir undir landsbókavörð og starfar þvert á svið safnsins í verkefnum sínum.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf, þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og fagmennsku, í sveigjanlegu starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með þróun og nýtingu skjalavörslu- og gæðakerfis safnsins
  • Móttaka, skráning, varðveisla og miðlun skjala
  • Gerð og viðhald málalykils, skjalavistunar- og grisjunaráætlunar og afhending rafrænna gagna til langtímavarðveislu
  • Leiðir þróun og eftirfylgni með skjalastefnu og verklagi við skjalastjórn
  • Stýring og viðhald á gæðaskjölum
  • Ráðgjöf og fræðsla fyrir starfsfólk um skjalavörslu- og gæðakerfið
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði skjalastjórnunar eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist i starfi
  • Þekking og reynsla á skjalavörslu og skjalastjórn
  • Þekking á skjala- og málakerfi OneSystems æskileg
  • Mjög góð tölvu- og tæknikunnátta
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Skipulagsfærni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar