Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Skipulagsfulltrúi

Kópavogsbær auglýsir starf skipulagsfulltrúa laust til umsóknar. Skipulagsfulltrúi stýrir skipulagsdeild bæjarins en þar starfar sjö manna samhentur hópur. Hann hefur umsjón með þróun á sviði skipulagsmála í bænum og ber ábyrgð á að meðferð skiplagsmála sé í samræmi við samþykkta stefnumótun, gildar skipulagsáætlanir og að farið sé eftir lögum og reglugerðum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Löggiltur skipulagsfræðingur eða sambærileg menntun sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meistarapróf á háskólastigi sem nýtist í starfi kostur
Reynsla af vinnu við skipulagsmál
Reynsla sem stjórnandi og af því að hafa mannaforráð
Góð þekking á skipulagslögum
Afburðagóð samskiptafærni
Góð reynsla af verkefnastjórnun í skipulagsmálum kostur
Reynsla af opinberri stjórnsýslu
Mjög góð færni og reynsla í framsetningu og kynningu á efni á íslensku og ensku
Þekking á teikniforritum og öðrum forritum tengdum skipulagsvinnu
Reynsla að vinna eftir gæðakerfi
Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Góð þekking á íbúasamráði æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur skipulags- og byggingardeildar
Stýrir vinnu skipulagsáætlana (aðal-, deili- og hverfisskipulags) og skipulags- og byggingarskilmála
Umsjón og eftirlit með gerð umhverfismats áætlana
Hefur umsjón með útgáfu framkvæmdaleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingarerindi
Stýrir vinnslu grenndarkynninga, deiliskipulagsbreytinga og byggingarleyfa
Ber ábyrgð á auglýsingum um skipulagslýsingar og skipulagsbreytingar lögum samkvæmt
Undirbúningur funda skipulagsnefndar og umhverfis- og samgöngunefndar
Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila
Ber ábyrgð á að farið sé eftir gæðakerfi í starfi deildarinnar
Þátttaka í samráðshópum um skipulags- og byggingarmál
Situr í fagráði svæðisskipulagsnefndar SSH
Umsagnir vegna kærumála og álitaefna í samstarfi við lögfræðideild
Auglýsing birt8. október 2021
Umsóknarfrestur24. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar