Andrastaðir
Andrastaðir er heimili fyrir karlmenn sem eiga við fjölþættan vanda að stríða, oft með geðröskun, fíkniefnavanda, þroskaskerðingar, einhverfu og skyldar raskanir og eiga í erfiðleikum með að fóta sig í samfélaginu. Á Andrastöðum er skapað umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að vinna með einstaklinginn út frá hans eigin forsendum og einblína á kosti hans, möguleika, áhugamál og framtíð. Andrastaðir eru á Kjalarnesi.
Skemmtilegt starf í sveitinni
Ert þú drífandi persóna með mikið frumkvæði og vinnur vel í teymi?
Um er að ræða starf á heimili á Kjalarnesi fyrir fullorðna karlmenn með fjölþættan geðrænan vanda. Spennandi tækifæri til þess að taka þátt í uppbyggingu og þróun Andrastaða.
Unnið er í vaktavinnu og leitumst við eftir ýmiss konar starfshlutfalli.
Fyrir frekari upplýsingar um starfið er hægt að hafa samband á netfangið mary@andrastadir.is
andrastadir.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hvetja og styðja þjónustuþega til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
- Félagslegur stuðningur við þjónustuþega
- Aðstoð við þjónustuþega í daglegum störfum heimilisins, s.s. þrif, matseld o.fl.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustuþega
- Styðja þjónustuþega í undirbúningi fyrir atvinnulífið, s.s. með námi eða vinnuþjálfun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hæfni til að leita lausna og vinna úr vandamálum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með geðfötluðum æskileg
- Áhugi á málefnum geðfatlaðra
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf skilyrði
Fríðindi í starfi
Akstursstyrkur
Auglýsing birt2. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
brautarholtsvegur 63
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Helgarvinna og uppsetningar
Sölutraust
Vaktstjóri Snóker og pool
Jókerinn ehf.
Ferðaþjónusta fatlaðra Akstur
Teitur
Stuðningsfulltrúi
Sólheimar ses
Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin
Starfsmaður í umönnun - Dagvaktir
Sóltún hjúkrunarheimili
Stuðningur við fötluð börn óskast í vetrarfrístund í Fjarðab
Fjarðabyggð
Kona sem kann prjón eða hekl óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Tanntæknir eða aðstoðarmaður tannlæknis
Sterling ehf
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Lyfja Smáratorgi - Sala og þjónusta
Lyfja