Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skemmtileg sumarstörf - Sjúkraliði

Heimahjúkrun HH leitar eftir sjúkraliðum eða sjúkraliðanemum í sumarstörf. Um er að ræða tímabundin störf þar sem unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 40-100% eða skv. samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingshæfð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu.Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi með öðrum sjúkraliðum, hjúkrunarfræðingum og öðrum starfsmönnum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Sjúkraliði sinnir einnig öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra ásamt því að taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Sjúkraliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Mikil samskiptahæfni 
  • Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun 
  • Reynsla af heimahjúkrun æskileg 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing stofnuð27. febrúar 2024
Umsóknarfrestur18. mars 2024
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar