

Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð 2026
Hefur þú áhuga á að vinna í skapandi greinum; tónlist, myndlist, leiklist og hvað eina!
Starfsfólk skapandi sumarstarfa vinna að því að framleiða og við uppsetningu menningarviðburða í Fjarðabyggð en einnig er unnið að einstaklingsbundnum
skapandi verkefnum.
Langar þig að kynnast því að vinna í menningu og listum? Skapandi sumarstörf er tilvalinn stökkpallur fyrir þá sem vilja helga sig starfsferill í skapandi greinum. Ef svarið er já þá eru skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð eitthvað fyrir þig! Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 2001 til 2009 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Fjarðabyggðar í níu vikur á tímabilinu 25. maí til 31. júlí 2026.
Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Skapandi sumarstörf eru fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á skapandi verkefnum og vill vinna við myndlist og gjörninga, leiklist/sviðslist, skriftir, ljósmyndun, tónlist og kvikmyndagerð sem og ýmislegt annað sem tengist listum og menningu í Fjarðabyggð.
Starfið verður mótað af þeim verkefnum sem þarf að uppfylla eins og ákveðna skapandi þjónustu við samfélagið, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa og með áhugasvið þátttakanda að leiðarljósi.
Sumarstarfsmaður skapandi sumarstarfa hjá Menningarstofu Fjarðabyggðar starfar undir leiðsögn verkefnastjóra og stjórn forstöðumanns. Skapandi sumarstörf fela m.a. í sér að efla
listsköpun einstaklings og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að læra nýja hluti og til að kynnast ólíkum listgreinum. Mikilvægt er að umsækjendur geti unnið sjálfstætt sem og í hóp undir leiðsögn frá verkefnastjóra. Umsækjendur þurfa að skila inn kynningarbréfi um sig, áhugasvið sín sem og hugmyndum að verkefnum sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að í sumar.
Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni og gæði umsókna umsækjenda.
Einstaklingar og smærri hópar er hvattir til að sækja um.
- Efling listsköpunar með þátttöku í verkefnum, t.d. á tónlist, myndlist, hönnun, sviðslistum og kvikmyndagerð
- Skapandi þjónusta við samfélögin
- Koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum
- Halda uppskeruhátíð skapandi sumarstarfa.
- Gerð er krafa um stundvísi, samviskusemi og almenna kurteisi.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni er kostur.
- Áhugi á umhverfismálum er kostur.
- Hæfni mannlegum samskiptum er æskileg
