

Skáld Hótel leitar að barþjóni - Skáld Hótel is looking for a Bartender
Skáld Hótel, hluti af Curio Collection by Hilton, er boutique-hótel byggt á íslenskri bókmenntahefð — þar sem andrúmsloft, hönnun og sögur mætast.
Við leitum nú að barþjóni til að taka þátt í uppbyggingu nýs hótels og skapa einstaka upplifun fyrir gesti okkar. Starfið hentar einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund, vinnur af ró og yfirvegun og hefur áhuga á gæðum, stemningu og fallegri framsetningu.
Bæði fullt starf og hlutastarf koma til greina.
Skáld Hótel, part of Curio Collection by Hilton, is a boutique hotel inspired by Icelandic literary heritage — a place where atmosphere, design and stories come together.
We are now looking for a Bartender to join us in building up a new hotel and creating a unique guest experience. This role is ideal for someone who is service-minded, calm under pressure and interested in quality, atmosphere and thoughtful presentation.
Both full-time and part-time positions may be considered.
- Barþjónusta og þjónusta við gesti
- Undirbúningur og framreiðsla drykkja
- Að skapa hlýlegt, faglegt og afslappað andrúmsloft
- Frágangur, þrif og umhirða barsvæðis
- Að tryggja snyrtilegt og vel skipulagt vinnuumhverfi
- Samvinna við veitingateymi, eldhús, móttöku og aðrar deildir hótelsins
- Bar service and guest assistance
- Preparing and serving drinks
- Creating a warm, professional and relaxed atmosphere
- Cleaning, closing duties and general care of the bar area
- Ensuring a tidy and well-organized work environment
- Working closely with the restaurant team, kitchen, reception and other hotel departments
- Hefur ríka þjónustulund og jákvætt viðmót
- Vinnur af ró og yfirvegun
- Hefur auga fyrir smáatriðum
- Leggur áherslu á nærveru í þjónustu
- Er stundvís, ábyrgur og snyrtilegur
- Vill vera hluti af sterkum og samheldnum hópi
Reynsla af barþjónustu, veitingaþjónustu eða hótelstarfsemi er kostur, en viðhorf, metnaður og vilji til að læra skiptir mestu máli.
- Has a strong service mindset and a positive attitude
- Works with calmness and composure
- Has an eye for detail
- Values presence and attentiveness in service
- Is punctual, responsible and well-presented
- Wants to be part of a strong and supportive team
Experience in bar service, restaurant service or hotel operations is an advantage, but attitude, ambition and willingness to learn matter most.
- Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýs hótels í hjarta Akureyrar
- Vinnustað þar sem gæði, menning og samvinna eru í forgrunni
- Faglegt og styðjandi starfsumhverfi
- Starfsmannakjör innan Hilton
- Þjálfun og tækifæri til að þróast í starfi
- The opportunity to take part in building up a new hotel in the heart of Akureyri
- A workplace where quality, culture and teamwork are at the forefront
- A professional and supportive working environment
- Team member benefits within Hilton
- Training and opportunities to grow within the role
Enska
Íslenska










