Sjúkraþjálfari óskast í sjúkraþjálfun við Hringbraut
Við auglýsum eftir sjúkraþjálfara í okkar góða hóp í sjúkraþjálfun á Landspítala við Hringbraut. Starfshlutfall er 100%.
Hér er kjörið tækifæri til að dýpka þekkingu og verða hluti af skemmtilegri og öflugri liðsheild. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefst því gott tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Helstu legudeildir eru barnadeildir, kvennadeild, hjartadeild, hjarta- og lungnaskurðdeild, almenn kviðarholsskurðdeild, krabbameinsdeild og gjörgæsla. Möguleiki er að sinna gæsluvöktum á kvöldin og um helgar eftir aðlögun. Í sjúkraþjálfun á Landspítala er lögð áhersla á fagþróun, rannsóknir, kennslu og þverfaglegt samstarf.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum aðlögun undir handleiðslu reyndra sjúkraþjálfara.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu er nú 36 stundir. Markmiðið með því er að stuðla að betri heilsu og auka möguleika starfsfólks til að samþætta betur vinnu og einkalíf með bættri nýtingu vinnutíma og gagnkvæmum sveigjanleika. Fríðindi í starfi eru samgöngusamningur o.fl.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi.