Stoð
Stoð

Viltu vinna að lausnum sem bæta líf og styrkja heilbrigðiskerfið?

Stoð leitar að iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara sem vill nýta fagþekkingu sína til að styðja heilbrigðisstarfsfólk og bæta líf einstaklinga með vönduðum, notendamiðuðum lausnum.

Stoð er leiðandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem veitir aðgengi að þekkingu og lausnum sem efla heilbrigðiskerfið og rannsóknir. Við leggjum áherslu á fagmennsku, lausnir og sterka liðsheild.

Starfið er fjölbreytt og gefandi og felur í sér ráðgjöf, sölu og þjónustu við hjálpartæki, með áherslu á ETAC hjólastóla og fylgihluti, í nánu samstarfi við fagfólk og stofnanir.

Í boði er fjölbreytt og afar gefandi starf sem miðar að því að styðja einstaklinga til aukinna lífsgæða og þátttöku í samfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ráðgjöf, sala og kynning á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum til einstaklinga og stofnana
  • Fræðsla, kynningar og eftirfylgni fyrir notendur og heilbrigðisstarfsfólk
  • Umsjón með innkaupum, birgðahaldi og samskiptum við erlenda birgja og innlenda samstarfsaðila
  • Samsetning, stilling og afhending hjálpartækja ásamt ráðgjöf í verslun og sýningarsal
  • Þátttaka í útboðum og tilboðsgerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, verkfræði eða tæknifræði
  • Þekking eða reynsla af hjálpartækjum og/eða vinnu með skjólstæðingum
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Geta til að vinna sjálfstætt sem og í samhentu teymi
  • Drifkraftur, fagleg metnaður og jákvætt viðhorf
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu 
  • Niðurgreiddur hádegisverður
Auglýsing birt9. janúar 2026
Umsóknarfrestur25. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar