
Tryggingastofnun
Tryggingastofnun er þjónustustofnun sem gegnir lykilhlutverki í velferðarþjónustu Íslands. Hlutverk stofnunarinnar er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna.
Hjá TR starfa um 100 starfmenn með hátt menntunarstig og mikla fagþekkingu. Starfsfólki er boðið upp á nútímalegt vinnuumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi, sveigjanlegur vinnutími og mikil samvinna.
Sjúkraþjálfari á örorkusvið
Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum? - þá ættir þú að kíkja á þessa auglýsingu því laust er til umsóknar starf sjúkraþjálfa hjá Tryggingastofnun (TR). Um er að ræða spennandi og krefjandi sérfræðistarf í matshópi um samþætt sérfræðimat. Starfið byggir á frumkvæði og þéttu samstarfi í breiðum þverfaglegum hópi sérfræðinga. Starfið felst í mati á umsóknum um örorkulífeyri og þátttöku í mótun og vinnu í nýju samþættu sérfræðimati sem er nýtt mat á örorku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat, greining og úrvinnsla umsókna um örorkulífeyri
- Þátttaka í matsteymi vegna umsóknar um örorku sem byggir á samþættu sérfræðimati
- Aðkoma að mati á réttindum til sjúkra- og endurhæfingargreiðslna
- Þróun vinnuferla og rafrænnar þjónustu
- Skráning og meðhöndlun tölfræðiupplýsinga
- Önnur sérhæfð verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskst starfsleyfi sem sjúkraþjálfi
- Starfseynsla annaðhvort af sviði heilbrigðis- eða velferðarþjónustu er nauðsynleg
- Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna
- Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
- Faglegur metnaður, lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt12. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)

