KIM ENDURHÆFING
KIM ENDURHÆFING

Sjúkraþjálfari

Ert þú árangursdrifinn og metnaðarfullur sjúkraþjálfari, tilbúinn að takast á við krefjandi áskoranir og vilt hafa mótandi áhrif á greinina á alþjóðlegum vettvangi? Þá gæti þetta verið tækifæri fyrir þig.

Við ætlum að fjölga í teyminu og óskum því eftir að ráða fleiri metnaðarfulla sjúkraþjálfara sem eru tilbúnir að takast á við áskoranir sjúkraþjálfunar á nýjan hátt í kraftmiklu og þverfaglegu starfsumhverfi.

Við hjá KIM ENDURHÆFING leggjum metnað okkar í að veita þeim sem glíma við stoðkerfisvandamál árangursríka þjónustu. Okkar markmið er að bjóða upp á sérsniðnar endurhæfingarmeðferðir byggðar á viðurkenndum aðferðum, mælingum og þjálfunartækni sem auka skilvirkni og árangur endurhæfingar.

Þú munt hafa tækifæri til að leggja þitt af mörkum við þróun verkefna, þróa og beita framsæknum meðferðaraðferðum sem stuðla að bættri upplifun skjólstæðinga og hámarka klíniskan árangur.

Menntunar- og hæfniskröfur
Löggilt sjúkraþjálfarapróf og íslenskt starfsleyfi landlæknis
Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi og áhugi á alþjóðlegu samstarfi
Framsækni og metnaður til að ná árangri í starfi
Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð enskukunnátta
Auglýsing birt31. ágúst 2021
Umsóknarfrestur15. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar