
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 250 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Sjúkraliði við heimahjúkrun - sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða sjúkraliða í sumarafleysingu á heimahjúkrunardeild á Ísafirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sjúkraliðar heimsækja, aðstoða og annast um skjólstæðinga á heimilum þeirra. Vinnutími er á morgunvöktum á virkum dögum og á 4 klst kvöldvöktum. Unnið er aðra hverja helgi.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Starfsreynsla æskileg
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Torfnes, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


