Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Sjúkraliði/starfsmaður í aðhlynningu óskast á Patreksfjörð

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði óskar að ráða sjúkraliða og/eða starfsmann í aðhlynningu í hlutastarf/tímavinnu á virkum dögum og/eða um helgar skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða almenn störf sjúkraliða á legudeild.  Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn sjúkraliða sem langar að breyta til en einnig kjörin staða fyrir alla þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu. 

Á deildinni starfar öflugur hópur og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði. Hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa rúmlega 270 manns og veitir stofnunin almenna heilbrigðisþjónustu á þremur sviðum; hjúkrunarsviði, heilsugæslusviði og sjúkrasviði, með sjúkrahús á Ísafirði og Patreksfirði. Í teyminu, sem byggir á samstarfi ríkis og sveitarfélaga, er lögð rík áhersla á góða samvinnu, góðan starfsanda og að virðing sé borin fyrir samstarfsfólki og skjólstæðingum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almenn menntun og reynsla sem nýstist í starfi
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi ef við á (sjúkraliðar)
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Auglýsing stofnuð28. febrúar 2024
Umsóknarfrestur25. mars 2024
Staðsetning
Stekkum 1, 450 Patreksfirði
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar