

Sjúkraliði - Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma óskar eftir sjúkraliða í 80% starf. Við leitum eftir sjúkraliða sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að ræða fjölbreytt starf á góðum vinnustað.
Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Áhersla er á tækninýjungar og fjarþjónustu. Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum deildarinnar.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Deildin sinnir göngudeildarþjónustu vegna gigtarsjúkdóma annars vegar og innkirtlasjúkdóma hins vegar. Einnig er starfrækt þar miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma.













































