
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi tók til starfa árið 1993. Eir tryggir umfangsmikla og fjölbreytta starfsemi fyrir lasburða eldri borgara og er meðal stærstu hjúkrunarheimila landsins með samtals 185 pláss. Unnt er að bjóða sérlausnir fyrir ýmsa hópa svo sem aðstöðu fyrir blinda og sjónskerta hjúkrunarsjúklinga, einstaklinga með heilabilun á öllum stigum svo sem dagdeildir og heimilisdeildir. Á Eir er líka endurhæfingardeild þar sem einstaklingum frá Landspítala býðst endurhæfing eftir heilsufarsáföll. Á endurhæfingardeildinni hefur náðst frábær árangur þar sem yfir 90% skjólstæðinga útskrifast heim.
Hjá okkur starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu að baki.
Ef þú vilt bætast í teymið okkar, sendu okkur þá umsókn !

Sjúkraliði á Eirhömrum í verkefnið Gott að eldast
Langar þér að taka þátt í spennandi verkefni sem er í stöðugri þróun í Mosfellsbæ og Kjós?
Í boði er laus staða sjúkraliða á Eirhömrum vegna Gott að eldast, sem er samvinnu verkefni Mosfellsbæjar, Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og Eir, Skjóls og Hamra hjúkrunarheimila.
Um er að ræða stöðu í spennandi verkefni sem er í stöðugri þróun fyrir reynslumikinn sjúkraliða sem hefur áhuga á því að leggja sitt af mörkum við að skapa nýtt úrræði handa eldri borgurum Mosfellsbæjar og Kjós.
Sjúkraliðar sinna fjölbreyttu hlutverki í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem virðing, gleði, öryggi og vellíðan fyrir öldruðum eru leiðarljós í leik og starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðuð hjúkrun íbúa Hamra, skjólstæðingur heimahjúkrunar Mosfellsbæjar og Kjós
- Skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferðir í samráði við hjúkrunarfræðing.
- Samskipti við íbúa, skjólstæðinga og aðstandendur þeirra.
- Tekur virkan þátt í starfsþróun og gæðastarfi.
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi og uppsetning þróunarverkefnis Gott að eldast.
- Vinnur við RAI, Sögukerfi, Iðunni, Lyfjavaka og eMed.
- Önnur verkefni í samráði við forstöðumann og hjúkrunarfræðing.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliðamenntun og starfsleyfi sem slíkur.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptafærni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi.
Auglýsing birt29. janúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hlaðhamrar 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSjúkraliðiTeymisvinnaUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Viltu leiða stafræna þróun og upplýsingatækni?
Eir hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri á Eir, blundar í þér stjórnandi?
Eir hjúkrunarheimili

Sjúkraþjálfari - endurhæfingardeild á hjúkrunarheimilinu Eir
Eir hjúkrunarheimili

4. eða 5. árs læknanemi í sumarafleysingu - Eir endurhæfing
Eir hjúkrunarheimili
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast á lyflækningadeild
Landspítali

Staða sjúkraliða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Sjúkraliði - Heimahjúkrun HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði
Húðlæknastöðin

Sjúkraliðar með viðbótardiplóma - Hrafnista Nesvellir
Hrafnista

Sjúkraliði - Heilsugæslan Miðbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliði á göngudeild augnsjúkdóma, Eiríksgötu 5
Landspítali

Umönnun sumarstarf - Sléttuvegur
Hrafnista

Umönnun sumarstarf - Ísafold
Hrafnista

Umönnun sumarstarf - Skógarbær
Hrafnista

Umönnun sumarstarf - Laugarás
Hrafnista

Sumarstörf 2026 - Sjúkraliðar / sjúkraliðanemar
Landspítali