Augnlæknar Reykjavíkur
Hjá Augnlæknum Reykjavíkur starfa 11 sérfræðingar í augnlækningum auk 6 annarra starfsmanna.
Sérfræðingar okkar sinna almennri augnlæknaþjónustu auk flestra undirsérgreina augnlækninga. Meirihluti þeirra starfar jafnframt við augnskurðlækningar á Augndeild Landspítala og Handlæknastöðinni í Glæsibæ.
Augnlæknar Reykjavíkur fagna í ár 20 ára starfsafmæli. Fyrirtækið stendur á gömlum merg en hyggur jafnframt á miklar endurbætur á komandi misserum.
Sjúkraliði á augnlæknastöð
Við óskum eftir sjúkraliða í fjölbreitt starf í dagvinnu. Um er að ræða samstarf við augnlækna og annað starfsfólk við allt sem viðkemur þjónustu við sjúklinga sem koma í skoðanir og aðgerðir.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að komast inn í mjög áhugavert fag. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri kunnáttu á þessu sviði, heldur mun áhugasamur umsækjandi læra allt sem þarf í samvinnu við reynslumikið samstarfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og umsjón sjúklinga
- Símsvörun, tímabókanir og afgreiðsla fyrirspurna
- Notkun rannsóknartækja í greiningu augnsjúkdóma
- Umsjón með biðlistum og samskipti við sjúklinga sem bíða aðgerðar
- Innköllun sjúklinga í skoðanir og aðgerðir
- Undibúningur og fræðsla sjúklinga fyrir aðgerðir
- Afgreiðsla
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að búa yfir:
- sjúkraliðamenntun
- góðri færni í mannlegum samskiptum
- sveigjanleika í fjölbreyttu starfi
- áhuga á að læra nýja hluti
- góðri tölvukunnáttu
Þar sem fagið byggir talsvert á notkun tækja og tölvutækni er kostur að umsækjandi hafi góða grunnfærni og áhuga á slíku.
Auglýsing birt12. september 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSamskipti í símaSjúkraliðiSveigjanleikiTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)
Sjúkraliðar á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Lyfja Smáratorgi - Sala og þjónusta
Lyfja
Sjúkraliði í dagþjálfun - Laugarás
Hrafnista
Sjúkraliði óskast á kvenlækningadeild 21A
Landspítali
Umönnun, 80-100% starf - Eir, Hamrar og Skjól
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Sjúkraliði á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Sjúkraliði - Vaktstjóri
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sóltún - sjúkraliði, verkefnastjóri
Sóltún hjúkrunarheimili