Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Sjúkraliðar óskast til starfa

Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?

Heilsuvernd óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa. Ráðið er í stöðurnar frá og með mars 2026.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita skjólstæðingum líkamlega, andlega og félagslega aðhlynningu
  • Verkefni tengd almennri umönnun
  • Þátttaka í þróun og umbótum
  • Samskipti við aðstandendur þjónustuþega
  • Stuðla að góðum starfsanda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi 
  • Reynsla af starfi með öldruðum er æskileg
  • Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Auglýsing birt16. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 16, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar