Sjúkraliðar á bráðamóttöku
Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi vill ráða til starfa öfluga sjúkraliða. Deildin er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þangað koma allir sjúklingahópar Landspítala og er því starfið fjölbreytt og engir dagar eins. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er náið með öllum starfsstéttum. Á deildinni ríkir sérstaklega góður starfsandi.
Við leitum eftir metnaðarfullum sjúkraliðum sem eru sjálfstæðir í starfi, með ríka þjónustulund og með góða samskiptahæfni. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og unnið er á þrískiptum vöktum. Upphaf starfa er samkomulag. Nýtt starfsfólk fær einstaklingsmiðaða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Stuðla að góðum samstarfsanda
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta