
Sjúkraflutningar - framtíðarstarf
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugu fólki óháð kyni og uppruna í framtíðarstörf til að sinna bráðaþjónustu og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu, ásamt ýmsum störfum sem því tengjast.
Við leitum að starfsfólki sem vill láta gott af sér leiða og vill tilheyra öflugu liði fólks sem sinnir viðbragðsstörfum. Um er að ræða vaktavinnu og verða umsækjendur að geta hafið störf í 1. október 2024.
Sinna bráðaþjónustu og sjúkraflutningum á starfssvæði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
· Framhaldsskólapróf
· Hafa löggildingu frá Landlækni sem EMT-B
· Hafa starfað við sjúkraflutninga sem EMT-B/EMT-I í a.m.k. ár
Hafa C-1 meirapróf
· Góð samskiptahæfni, lausnarmiðað hugarfar, frumkvæði, drifkraftur og reglusemi áskilin
· Gott siðferði, samviskusemi og áhugi á sjúkraflutningum
· Hefur sýnt ábyrgð, trúnað og fagmennsku sem sjúkraflutningamaður
· Standast þrek- og styrktarpróf hjá SHS
· Standast læknisskoðun hjá SHS
· Góð íslenskukunnátta, bæði tal- og ritmál
· Góð enskukunnátta
· Kunnátta í þriðja tungumáli kostur
Enska
Íslenska