

Sjálfboðaliðar óskast – Iceland Innovation Week 2026
Viltu taka þátt í einni stærstu nýsköpunarhátíð landsins og öðlast dýrmæta reynslu, tengsl og innsýn í íslenskt frumkvöðlaumhverfi?
Við leitum að kraftmiklum og jákvæðum sjálfboðaliðum til að taka þátt í framkvæmd Iceland Innovation Week 2026.
Helstu verkefni eru:
- Móttaka gesta og þátttakenda
- Aðstoð við viðburði og samskipti við gesti og þáttakendur
- Upplýsingagjöf og almenn þjónusta
- Aðstoð við uppsetningu og frágang
Við leitum að sjálfboðaliðum sem:
- Geta gengið í hin ýmsu verk
- Hafa áhuga á nýsköpun og viðburðum
- Sýna frumkvæði og hafa jákvætt viðhorf
- Búa að góðum samskiptahæfileikum
- Vinna vel í teymi
Tímasetning:
Iceland Innovation Week fer fram 27. apríl – 30. Apríl 2026
Skráning:
Endilega sendu okkur stutta umsókn með nafni, tölvupóstfangi, símanúmeri og örfáum línum um þig á: [email protected]
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Bestu kveðjur,
Iceland Innovation Team
Fríðindi í starfi
Hvað færð þú út úr þessu?
- Einstakt tækifæri til að kynnast frumkvöðlum, fjárfestum og sérfræðingum
- Dýrmæta reynslu af stórum viðburði
- Tengslanet og ný tækifæri
- Skemmtilega og lifandi stemningu
Auglýsing birt14. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
Almannatengsl (PR)ÍmyndarsköpunMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)
