Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir kennara í textílmennt

Sjálandsskóli auglýsir eftir kennara í textílmennt í 1.-10. bekk. Um er að ræða tímabundið starf og mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst.

Sjálandsskóli er grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í Sjálandsskóla er lögð áhersla á skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu með hag nemenda að leiðarljósi.

Leitað er eftir einstaklingi með mikinn metnað sem er tilbúinn að starfa í teymisvinnu að sveigjanlegu skólastarfi samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám og kennslu í textílmennt í 1.-10. bekk.
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Lágmark 90 námseiningar á einu sviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/ eða starfi með börnum/ ungmennum er æskileg
Auglýsing birt14. júlí 2025
Umsóknarfrestur5. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar