Set ehf | Röraverksmiðja Klettagarðar 21, 104 Reykjavík
Starf í nýju vöruhúsi Set ehf
Set ehf. leitar að öflugum starfsmönnum í vörumóttöku, tiltekt og afgreiðslu pantana á nýjum vörulager að Klettagörðum 21.
Þekking á pípulögnum og lagnavörum er kostur.
Hæfniskröfur eru:
· Skipulögð og vönduð vinnubrögð
· Þjónustulund
· Góð almenn tölvuþekking
· Geta til að vinna undir álagi
· Eiga auðvelt með mannleg samskipti
Set ehf sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á veitutengdu lagnaefni.
Fyrirtækið er staðsett á Selfossi en framleiðsla fer einnig fram í Haltern Am See í Þýskalandi.
Set ehf. er skapandi og líflegur vinnustaður með öflugu starfsfólki sem vinnur ólík verkefni í mörgum deildum.
Auglýst starf er á nýjum vörulager sem settur er upp á Reykjavíkursvæðinu til að einfalda vöruflæði, stytta flutningsleiðir og afhendingartíma til viðskiptavina en um leið losa rými á Selfossi fyrir vöruþróun nýsköpun og tækjasmíði.
11.02.2019
Staðsetning:Klettagarðar 21, 104 Reykjavík
Starfstegund:Fullt starf