

Sérnámsstöður í háls- nef og eyrnalækningum - á Landspítala og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í háls-, nef- og eyrnaskurðlækningum. Ráðið er til 2 ára í fyrstu en gert er ráð fyrir 5 ára sérnámi skv. marklýsingu, gert er ráð fyrir 6 mánuðum á öðrum skilgreindum deildum (t.d. lýta, heila- og tauga), 3 mánuðum á HTÍ og síðan 4 árum og 3 mánuðum á HNE deild. Framgangsmat unnið í samræmi við reglugerð 856/2023. Marklýsingin er vottuð og viðurkennd af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins. Námið er byggt á marklýsingu evrópsku HNE samtakanna. Skilyrði fyrir veitingu sérfræðiréttinda er fullnægjandi framgangur og að standast evrópusamtaka HNE. Sérnám fer fram á Landspítala og Heyrnar og talmeinastöð Íslands.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 27. febrúar 2024 en þann dag er móttökudagur, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. Sérnám lækna hefur mikilvæga þýðingu fyrir framþróun lækninga, gæði og öryggi þjónustu við sjúklinga.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi.
*Further information for applicants who do not speak Icelandic or have an Icelandic medical licence.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði, upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.





























































