

Sérnámsstöður í geðlækningum á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í geðlækningum. Fyrri hluti námsins eru 2 ár þar sem farið er yfir grunnatriði sérgreinar. Seinni hluti námsins eru 3 ár þar sem viðbótarþjálfun og aukin sérþekking fer fram. Sérnámið byggir á norskum og breskum marklýsingum og er framgangsmat unnið samkvæmt þeirra forskrift. Sérnám fer fram á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og geðheilsuteymi heilsugæslunnar.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 27. febrúar 2024 en þann dag er móttökudagur, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala en einnig á Sjúkrahúsinu á Akureyri í flestum greinum. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og SAk um sérnám í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum nema sérstakar aðstæður leyfi það ekki.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. Sérnám lækna hefur mikilvæga þýðingu fyrir framþróun lækninga, gæði og öryggi þjónustu við sjúklinga.
Doktorsnám er nú mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að jafnaði væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi.
Sjá kynningarmyndband.
*Further information for applicants who do not speak Icelandic or have an Icelandic medical licence.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði, upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.





























































