
Marbakki
Leikskólinn Marbakki tók til starfa árið 1986 og er staðsettur á einkar fallegum stað í Sæbólshverfi í Kópavogi. Einkunnarorð Marbakka eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Leikskólinn starfar eftir starfsaðferðum Reggio Emilia en undirstaða þeirra starfsaðferða er lýðræði. Lögð er áhersla á að börnin alist upp við að þau hafi heilmikið um sitt eigið líf að segja, þau hafi bæði rödd og áhrif. Litið er á barnið sem hæfileikaríkt og skapandi og að virkni þess og áhugahvöt sé árangursríkasti drifkrafturinn í námi þess.

Sérkennslustjóri óskast í Marbakka
Leikskólinn Marbakki auglýsir eftir sérkennslustjóra í 50% stöðu með möguleika á fullu starfi með stuðningi í 50% stöðu.
Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 98 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Unnið er í anda starfsaðferða Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu. Eitt meginverkefni sérkennslustjóra er að vera faglegur umsjónamaður sérkennslu í leikskólanum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsnám í sérkennslufræðum eða öðru sem nýtist í starfi æskilegt.
Reynsla af starfi í leikskóla.
Frumkvæði í starfi, vera jákvæður, geta unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með samskipti.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans.
Vinnur í nánu samstarfi við deildastjóra og foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu í leikskólanum, situr fundi er varða sérkennslu, innan skóla og utan.
Miðlar fræðslu til starfsmanna er tengist sérkennslu.
Auglýsing birt8. september 2021
Umsóknarfrestur21. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari og/eða leiðbeinandi
Leikskólinn Óskaland

Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Bæjarból - leikskólakennari/leikskólasérkennari 50%/(100%)
Garðabær

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I