Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Hörðuvellir
Leikskólinn Hörðuvellir óskar eftir að ráða sérkennara/þroskaþjálfa í 60-100% starf.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.
Starfið er laust frá nú þegar eða eftir samkomulagi.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna með sérþarfir
- Gerir áætlanir, sinnir þjálfun, leiðsögn og stuðningi barna með sérþarfir
- Skipuleggur og heldur utan um sérkennslu í nánu samstarfi við sérkennslustjóra
- Er í samstarf við foreldra og fagaðila um velferð barnsins
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi á að vinna með börnum
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
- Samgöngustyrkur
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson síma 5550721 eða 899-4189
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2024
Greinargóð ferilskrá og eða leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.