
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli er heildstæðu grunnskóli með nemendur í 1. - 10. bekk. Innan skólans er stórt alþjóðanámsver og sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Skólinn er starfrækur í tveimur húsum, í Digranesi, Álfhólsvegi 100 og Hjalla, Álfhólsvegi 120. Íþróttir eru kenndar í Íþróttahúsinu Digranesi og sund í Sundlaug Kópavogs.
Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni. Skólinn leggur áherslu á velferð nemandans og að hver og einn nái að eflast og þroskast út frá eigin forsendum.
Álfhólsskóli leggur áherslu á gott og náið samstarfs við foreldra um velferð nemenda. Hlutverk Álfhólsskóla er að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi í námsumhverfi sem stuðlar að sjálfstæði og þroska einstaklingsins.
Álfhólsskóli hefur þrjú gildi að leiðarljósi en þau eru menntun, sjálfstæði og ánægja.

Sérkennari og eða kennari í íslensku sem annað tungumál í Álfhólsskóla
Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfána- og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sérkennsla og kennsla í íslensku sem annað tungumál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu
- Reynsla í ÍSAT kennslu og eða sérkennslu æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Þekking og reynsla á teymiskennslu æskileg
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Fríðindi í starfi
Allt starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Kennarar óskast á yngsta stig í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Umsjónarkennari á miðstig í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Smíðakennari í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir deildarstjóra
Leikskólinn Akrar

Umsjónarkennari á mið-/yngstastigi í Húnaskóla
Húnabyggð

Sérkennari/Þroskaþjálfi í sérdeild einhverfa í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Kennari í skólaíþróttum og sundi
Fellaskóli

Leikskólar LFA - Leikskólinn Bakkakot - Erum við að leita að þér ?
LFA ehf.

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli - tímabundin ráðning
Hafnarfjarðarbær