Sérhæfður starfsmaður óskast til fjölbreyttra starfa
Við óskum eftir að ráða jákvæðan og þjónustulipran liðsmann með ríka samskipta- og samstarfshæfni til starfa á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Starfið er fjölbreytt og felst m.a. ræstingum á skurðstofum og skurðstofugangi og ýmis önnur verkefni. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu og er lágmarksaldur umsækjanda 18 ár. Starfið felur í sér vaktavinnu. Unnið er á morgunvöktum (8-16, 9-12 og 12 -20), kvöldvöktum (15-23) og næturvöktum (20-08). Einnig unnið á helgarvöktum 2 skiptar 12 tíma vaktir, ásamt bakvöktum. Ráðið er í starfið sem fyrst, eða eftir nánari samkomulagi og er starfshlutfall 100%.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi og er starf sérhæfðs starfsmanns mikilvægur hlekkur í góðri þjónustu við sjúklinga.
- Ræsting á skurðstofum og skurðstofugangi
- Pöntun og frágangur á líni
- Áfyllingar
- Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Rík þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð í vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta er áskilin
- Hæfni til að vinna í teymi
- Stundvísi og áreiðanleiki