
Sérgreinadýralæknir fisksjúkdóma
Matvælastofnun leitar af metnaðarfullum sérgreinadýralækni til að slást í fiskeldis teymið okkar, tækifæri til að móta og skapa framtíð í fiskeldisdeild.
Markmið fiskeldisdeildar er að stuðla að ábyrgu lagareldi og standa vörð um heilbrigði og velferð lagardýra. Traust, gagnsæi og fagleg umgjörð er lykilatriði til að greinin fái að vaxa og dafna í sátt við umhverfið og samfélagið.
Lagareldi er fjölbreytt atvinnugrein með mörgum undirgreinum, s.s sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungaeldi. Lagareldi á sér langa sögu á Íslandi en hefur vaxið hratt síðasta áratuginn, fyrst og fremst í sjókvíaeldi á laxi. Miðað við núverandi áform getur lagareldi orðið ný stoð í íslenska hagkerfinu og mikilvægt að greinin þróist og vaxi með sjálfbærum hætti.
Til að ná háleitum markmiðum þarf frábæra liðsheild, þess vegna viljum við fá í okkar hóp metnaðarfullan og skapandi einstakling sem hefur áhuga á að kynnast og þróa framtíð fiskeldis. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki, þjálfum það og leiðbeinum um allt sem snýr að fiskeldi og því er reynsla af fiskeldi/lagareldi ekki nauðsynleg! Starfið er á starfsstöð Matvælastofnunar á höfuðborgarsvæðinu.
- Sinnir eftirliti í fiskeldisstöðvum
- Sýnatökur í fiskeldi
- Úrvinnsla umsókna um inn- og útflutning dýra og dýraafurða
- Útgáfa heilbrigðisvottorða
- Önnur verkefni tengd inn- og útflutning
- Úrvinnsla gagna og miðlun niðurstaðna
- Aðkoma að uppbyggingu fiskeldisdeildar
- Önnur tilfallandi verkefni fiskeldisdeildar
- Hefur enskufærni málfar og ritun C1 skv. samevrópska tungumálarammanum.
- Hefur íslenskufærni málfar og ritun B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
- Dýralæknismenntun og réttindi til dýralækninga
- Sérstök þekking á sjúkdómum eldisfiska kostur
- Áhugi á að læra gagnaúrvinnslu
- Nákvæmni, frumkvæði, lausnarmiðuð nálgun og sjálfstæði í starfi
- Geta til að vinna undir álagi, þrautseigja og aðlögunarhæfni
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á ensku er skilyrði, tök á norðurlandamáli kostur
Íslenska
Enska