Sérfræðingur í viðhaldsmálum
Hjá First Water eru spennandi tímar fram undan. Mikil og hröð uppbygging fiskeldisstöðvarinnar kallar á uppbyggingu viðhaldsstjórnunarkerfa.
Hjá okkur er markmiðið að byggja upp faglega viðhaldsstjórnun sem byggir á hugmyndafræði fyrirbyggjandi viðhalds. Við leitum því að vélstjóra, véltækni-eða iðnfræðingi, með reynslu af viðhaldsstjórnun og rekstri á vélbúnaði, til að slást í lið með okkur.
Helstu verkefni
- Innleiðing á viðhaldsstjórnunarkerfi
- Gerð viðhaldsáætlana
- Gerð verkbeiðna og eftirfylgni með verkum
- Val og innkaup á búnaði
- Rýni teikninga og hönnunargagna
- Eftirlit með uppsetningu og gangsetningu á búnaði
- Umsjón með ástandsvöktunarbúnaði
Menntunar og hæfniskröfur
- Vélstjórn, véltækni-eða iðnfræði eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af DMM viðhaldsstjórnunarforritinu
- Reynsla af rekstri og viðhaldi vélbúnaðar
- Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Árni Viggó Sigurjónsson viðhaldsstjóri, arni.sigurjonsson@firstwater.is
Umsóknafrestur er til og með 11. desember
First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.